Á Sprengisandi Lyrics Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn Rennur sól á bak við Arnarfell Hér á reiki er margur óhreinn andinn Úr því fer að skyggja á jökulsvell; Drottinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn Drottinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn Þey þey! þey þey! þaut í holti tófa Þurran vill hún blóði væta góm Eða líka einhver var að hóa Undarlega digrum karlaróm; Útilegumenn í Ódáðahraun Eru kannske að smala fé á laun Útilegumenn í Ódáðahraun Eru kannske að smala fé á laun Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn Rökkrið er að síða á Herðubreið Álfadrottning er að beisla gandinn Ekki er gott að verða á hennar leið; Vænsta klárinn vildi ég gefa til Að vera kominn ofan í Kiðagil Vænsta klárinn vildi ég gefa til Að vera kominn ofan í Kiðagil
Preko 20 000 karaoka.